Af mínu æsispennandi lífi

Allt er heitt sem vel er bleikt!

19.07.2007 17:42:10 / tinna

ATH

tinnamjoll.blog.is

» 0 hafa sagt sína skoðun

26.04.2007 18:48:13 / tinna

kóngsins köbenhavn!!!

Jebbsí pepsí

Nú ætlar gellan að leggja land undir fót og flytjast búferlum (ásamt fylgdarsveini)... ójá, leiðin liggur til kóngsins Köben nk haust! íha!! Vantar reyndar íbúð og vinnu EN maður hefur rúma 4 mánuði til þess að redda svoleiðis smáatriðum

Knús og fullt af kossum

stinni 

 


» 10 hafa sagt sína skoðun

28.02.2007 15:39:49 / tinna

Bleeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeehhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhh

Jámm og jæja... í síðustu viku fékk ég e-a pesti og lá heima í þrjá langa daga. Í gær fékk ég ælupesti og ligg núna í eigin vorkunn og aumingjaskap! hnussss. Mér finnst þetta ekki sanngjarnt, eru ekki lög um að allavega 2 vikur verði að líða milli flensa? En allavega þá er ég búin að vera voða dugleg að lesa og horfa á sjónvarpið -obbóslega léleg dagskrá á daginn, get nú ekki sagt annað. Þá sérstaklega langar mig aðeins að tala um þáttinn vörutorg.  Eru ekki svona sjónvarpsmarkaðir úreltir og voru það frá og með árinu 1995?? Ég spyr, ekki laust við að maður fái kjánahroll við að horfa á þetta (en það segir nú ýmislegt um mig sjálfa að ég horfi...)

En nóg um það, get hreinlega ekki skrifað meira, er farið að svima... Gott fólk farið nú að koma i heimsókn, ég er að deyja úr leiðindum... Lofa að smita ekki!


» 7 hafa sagt sína skoðun

21.02.2007 12:01:11 / tinna

Takk fyrir mig!

Eins og alheimur veit þá hélt ég upp á tötttttöogfemm ára afmælið mitt á kofanum sl helgi... OG ÞAÐ VAR ÓGEÐSLEGA GAMAN!!!

Páll Magnús á RÚV gaf mér forkeppni Júró í afmælisgjöf -því miður gat hann ekki gefið mér það sigulag sem ég vildi helst en ok... Eiki er svosem alveg flottur líka

Fjúfff já... :haha: Afmælið á Kofanum... Kl hálf ellefu er fólk í óðaönn að streyma inn. Jómfrúarstaffið er seint og ég er farin að efast um að þau mæti. Viti menn inn ryðjast (í bókstaflegri merkingu þessa orðs) 6 einstaklingar sem höfðu tekið þemað -júróvisjón- bókstaflega. Þarna var öll heimsins litaflóra í hárkollum og djöfulgangurinn og lætin í þeim voru ótrúleg! En þau komu, sáu, sigruðu og áttu staðinn!!! Ok... stuttu seinna er mér plantað upp á borð þar sem ég átti að lesa kort frá Kofastaffinu -sem var heil ritgerð, því án gríns; hver einasti starfsmaður tók þátt. Svo var mér afhentur poki og sjittfokk... það leið næstum yfir mig! Litlu kofadýrin mín gáfu mér MAGADANSBÚNING! fjúbbífjú... svo var minni troðið í búninginn og látin performa fyrir fullum kofa!!! Sem betur fer var Margrét dj og magadanskennari mér til halds og trausts og dansaði með mér. Ég hef næstum aldrei verið jafn hrædd á ævinni EN skemmti mér konunglega! Restina af kvöldinu ætla ég að geyma að skrifa þar til síðar 8)

En já... ég vil bara segja takk kærlega fyrir komuna og takk fyrir mig og já... takk

knús og kysss

Aldarfjórðungurinn

ps Langaði að mæla með plötunni Boheme með Deep Forrest -snilld 

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

12.02.2007 23:01:54 / tinna

Mætið!!!!

Af hverju eru ekki fleiri konur á þingi?

Í kosningunum árið 1999 fjölgaði konum á Alþingi um sex og voru þær þá 22 af 63 þingmönnum. Aldrei áður höfðu fleiri konur verið kjörnar á þing. Fjórum árum síðar fækkaði þeim um þrjár og niður í tæplega 30% þingmanna. Allt lítur út fyrir að konum muni fækka á Alþingi eftir kosningarnar í maí nk. Hvað veldur og af hverju eru ekki fleiri konur á þingi?

Þessum spurningum ætla Ungir jafnaðarmenn að reyna að fá svör við á opnum fundi á Kaffi Sólon í hádeginu á miðvikudaginn. Fundurinn hefst stundvíslega kl. 12:00 og stendur í klukkutstund.

Frummælendur verða Sigríður Andersen, lögfræðingur og frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, og Þórunn Sveinbjarnardóttir, alþingiskona Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi.

Fundarstjóri verður Guðmundur Steingrímsson, frambjóðandi Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi.


Allir velkomnir.


» 9 hafa sagt sína skoðun

06.02.2007 13:41:56 / tinna

Væntumþykja?????

Jæja... nú þarf ég að viðurkenna soldið áður en lengra er haldið; ég horfi stundum á Insider á Sirkus!!! Ég hef ekki voða gaman af þessum þáttum og verð oft dáldið ringluð þegar ég horfi EN samt get ég ekki fengið sjálfa mig til þess að slökkva eða skipta um stöð.

Allavega þá var ég að horfa á þennan dásamlega þátt í gær og þar var m.a. verið að fjalla um 5 ára stúlku sem vó 90 kg!!!! Sjittfokk ég hef aldrei á ævinni séð afmyndaðra barn. Það var tekið viðtal við móður stúlkunnar sem fullyrti að læknir stúlkunnar hefði sagt við hana að hún væri að drepa barnið úr GÓÐMENNSKU!!! hmmmmmmm... ef við setjum málið í rökrétt samhengi þá er hún í raun að drepa barnið sitt og pynta á einn þann kvalafyllsta hátt sem hægt er... með því markvisst að gefa henni mat þar til hún getur ekki lifað eðlilegu lífi og er við dauðans dyr... vegna þess að það þarf enginn að segja mér að 5 ára stúlka geti borðað óhollan mat í laumi... hún er ekki að stinga af á MacDonalds né sefur með snakkpoka undir koddanum... þetta er 100% á ábyrgð móðurinnar og mér finnst ömurlegt að hún geti ekki tekið ábyrgð gjörða sinna og heldur því fram að með því að neita henni aldrei um mat -sé hún að sýna ást sína....

Ok þá er ég búin að ausa úr skálum reiði minnar...  og lofa að tala aldrei aftur um það sem ég sá í Insider...

Eftir Insiderþáttinn þá stillti ég á OMEGA en það er klárlega efni í næstu færslu :haha:

´tekkið á myspace.com/tussubest

knús og kossar


» 2 hafa sagt sína skoðun

02.02.2007 20:17:18 / tinna

Nýfædd -tæknivædd!

Fjúbbífjú... nú er túttan aldeilis farin að færa sig upp á skaftið í hinum harða heimi tækni og tölva... jebsípepsí; er komin með mæspeis síðu (sem er víst það heitasta og flottasta í dag).

Hvorugur nýji lífsstíllinn gengur vel... ég er hvorki settleg dama né búin að klífa Himalaja fjöll :$ ehemmmmmmmm

En afturámóti er ég orðin dugleg að blogga og ég er voða stolt af því!

Ragnhildur -æskuvinkona mín varð töttoguogfemm þann 31. jan! Elsku vinkona; ef þú rambar inn á þessa síðu þá segi ég innnnnnnilega til hamingju með aldafjóðunginn, ég er að ná þér 8|

Er annar að spila á kofa sinn í kvöld, hvet alla sem aldur hafa til þess að mæta

knús og kyssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssss


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.01.2007 14:15:22 / tinna

Nýr lífsstíll,. enn og aftur

asko... nú er ég enn og aftur búin að breyta um lífsstíl. Ég er ekki búin að gefa fjallgöngur upp á bátinn, góðir hlutir gerast hægt.

Nýji lífsstíllinn birtist mér sem ljós í myrkri... Gunnsa vinkona mín sendi mér póst með leiðbeiningum um siðprýði ungra kvenna (leiðarvísi í ástarmálum). Hún sendi mér þetta fyrir allnokkru síðan en ég var að afreka að lesa þetta í fyrsta sinn í dag og VITI MENN ég er heilluð: jebbs gamli dólgurinn stinni er farinn að eilífu og siðprúða daman Tinna er tekin við...allavega í bili. Kem ég til með að birta bút og bút úr þessu riti sem áðurnefnd Gunnsa sendi mér ... til þess að þið getið lesið og kannski... kannski ... breyti ég einhverjum til batnaðar

Gjöriði svo vel:

Þú skalt varast að nota augu þín mikið til þess að hafa áhrif á þá, sem þú þekkir eigi. Augna-daður er ljótt og ósiðsemis-einkenni. (þá vitum við það... mun betra er að horfa á fólk í brjóst- og punghæð til þess að varast allan misskilning)

Þú mátt heldur ekki brosa eða hlæja að öllu, alvarlegu jafnt sem skemtilegu, og eigi máttu brosa framan í hvern mann, sem verður á vegi þínum, og umfram alt forðast hið reykvíkska veiðibros, sem algengt er á vorum dögum. (nújæja... verð fyrst að uppgötva veiðibrosið til þess að geta ekki gert það... ætli ég megi þá sleikja út um og blikka fólk?)

Það virðist færast í vöxt, að konur liti andlit sitt með ýmsu móti og æfinlega í þeim tilgangi að sýnast fallegri en þær eru í raun og veru.Lauslætiskonan--sem er litljót--á að hafa einkarétt til að „smínka“ sig. (Vagga mín, athugaðu það nú!)

Þú mátt aldrei biðja karlmann að gefa þér sælgæti. (andskotinn)

Það er eigi viðeigandi að kona fari ein síns liðs á skemtun, veitingahús eða kvikmyndahús, og það gera engar siðprúðar konur.(og nú auglýsi ég eftir fylgdarsvein sem er tilbúinn 24/7 að fylgja mér út um allt ALLTAF)

Eg áminni þig alvarlega um að vera eigi lauslát, ef þú vilt verða hamingjusöm í lífinu og landi þínu og þjóð þinni til gagns og sóma. (ég skal íhuga þetta)

Þegar þú ferð að svipast um eftir eiginmanni, verður þú að vera heilskygn. Glámskygni, þegar um val eiginmanns er að ræða, getur orðið þér dýrkeypt, og þú iðrast þess alla æfi síðan. (þessu hef ég alltaf haldið fram)

Gaktu því eigi í hjónaband fyr en unnusti þinn hefir komist að stöðu með lífvænlegum tekjum og aflað þess fjár til bússtofnunarinnar, sem þið þurfið til þess að geta byrjað búskapinn skuldlaus. (og hana nú)

Jæja... nú er ég búin að drepa niður á nokkrum heilráðum sem vert er að tileinka sér á þessum síðustu og vestu tímum. Á morgun held ég áfram með fleiri góð ráð

þartilnæst

kyyyyyyyyyyyyyyysssssssssssssssssss


» 9 hafa sagt sína skoðun

29.01.2007 15:32:58 / tinna

áfram ísland!!!

Jebbs, HM allveg á grilljón og hef ég tekið mér pásu sem anti-sportisti og er nú orðin íþróttabulla (svona rétt á meðan leikar standa sem hæst). Get ekki annað en hrósað ísl handboltaliðinu bæði fyrir árangur og útlit... assgoti myndarlegir þessir menn :) Annars er lítið að frétta -er að vinna á kofa um helgina og það ætti að vera svaka stuð -það á víst að vera fullt tungl um helgina og það eitt gerir helgina mjöööööög áhugaverða. Allt að verða pungvitlaust í pólitíkinni; Frjálslyndir ekki alveg að meika það þessa dagana... mér finnst að þeir hefðu átt að kjósa hana Margréti enda hörkukvendi... en þar sem ég hef ekki atkvæðisrétt í þessu máli þá vil ég bara tuða á netinu! Röskva er að massa háskólapólitiíkina og ég held að það stefni í stórsigur í komandi kosningum! Ákvað á sunnudaginn að verða ein af þessu fjallafólki... sem labbar útum allt í spandexbuxum og flíspeysu með hitabrúsa í annarri og tjaldhæl í hinni. Ég held að það sé massaskemmtilegt að klifra út um hvippinn og hvappinn og núna auglýsi ég eftir fjallafélaga/félögum sem eru tilbúnir að anda að sér fjallalofti og kúka í mosa... knús og kyss

» 4 hafa sagt sína skoðun

16.01.2007 12:08:09 / tinna

Þorrablót!!!!

Ég hef aldrei farið á þorrablót og ég er ekki frá því að ég sé verri manneskja fyrir vikið...

Vona að þið hafið haft það voða gott um jólin og hátíðarnar, ég hafði það alltof gott, áramótafötin enduðu aðeins þrengri en þau upphaflega voru við mátun í byrjun mánaðarins.8| Hnussssss...

Án gríns, hvað er AÐ ÞESSUM KLIKKHAUSUM sem vinna á fríblöðum Íslands, aka Blaðinu og Fréttablaðinu. Fyrir jól voru uppskriftir og fleira sneddý... og í stuttu máli var aðalþemað ,,big is beautiful" og ,,yfirdráttur er töff" þannig að maður var orðinn heilaþveginn af djúsí jólauppskriftum og langaði í allllllllt sem til var í öllllllum búðum. Frá og með þriðja jan hafa bæði blöðin lagt sitt af mörkum til þess að stuðla að anorexíu og líkamrækaræði landans. Nú þykir ekki töff að vera með appelsínuhúð og hliðarspik... Eftir að hafa lesið megrunar- og lífrænt matarræði greinar í rúmar þrjár vikur þá hef ég séð í gegnum plottið!!! Vinsamlegast sjáið það líka og verið hamingjusöm, það er ekki töff að vera herðatré og allt er gott í hófi, meira að segja hambó! :haha:

Jæja þá eru það blesssssuðu kosningarnar... háskólakosningarnar nálgast óðfluga og líka alþingiskosningarnar... sjúddírarírei.... Alltaf gaman og alltaf stuð

knús og kossar


» 10 hafa sagt sína skoðun

11.12.2006 19:10:03 / tinna

jóla hvað???

Jæja krúttin mín, nú er ég búin að vera upptekin við að vinna eins og hálfviti! össsssh... það er sko rosa púl að vera þjónn á jólatíma... allir þurfa að borða voða mikið... hmmmmmmmmm EN það er voða gaman.

Þannig að ég hef ekkert gert nema að vinna og hanga á Kofanum mínum ásamt skemmtilegu fólki... það eina sem ég hef náð að skipuleggja eru sjónvarpskvöld og meira að segja þau hafa dottið upp fyrir...8|

Agglavega -fyrir þá sem hafa áhuga þá er jólasveinninn Jesú komin úr gettóinu og inn í stofu til mín, það reyndar vantar í hann ljósaperu (sem er í einhverjum kassa, einhversstaðar...) en hann er alltaf jafn fallegur og ljómandi í mínum augum.

Jæja, nenni ekki að skrifa meira, þartilnæst -lifið heil-

ps. hvað er málið með að bjóða gleðileg jól í sífellu??? ÞAÐ ERU RÚMAR 2 VIKUR ÞANGAÐ TIL!!! hreinlega skil þetta ekki...


» 7 hafa sagt sína skoðun

22.11.2006 17:04:33 / tinna

Tæknileg mistök

Já ok krakkar mínir; manni geta orðið á mistök. Það kom víst uppúr krafsinu að Jólasveinninn Jesú býr í Breiðholtinu -en það er víst rétthjá Selfoss. Þannig að ég þarf að heimsækja gettóið fyrir jól og endurheimta sveinka. Ég vona að þessi tæknilegu mistök mín hafi ekki valdið neinum hugarkvilla hjá ykkur yndin mín.8|

endalaus ást í skammdeginu

:haha:


» 4 hafa sagt sína skoðun

20.11.2006 14:08:37 / tinna

Allt að gerast í Grafarvognum!!

össsssh...tja hvar á ég að byrja?

Sennilega á byrjuninni: Naggrísinn minn er mjög undarlegt dýr. Þessa dagana er hann í fýlu við mig sem lýsir sér þannig að hann er allan daginn inní búri og kemur ekki út nema ég hendi mat í hann. Fer svo aftur inn í húsið sitt. Nema að ég spili fyrir hann eitís tónlist og þá sérstaklega lagið Maniac úr Flashdance myndinni... þá kemur hann úr húsinu, hressari sem aldrei fyrr... þegar lagið er búið fer hann aftur inn... jammmm...

18. nóv -international gay day! Jebbbbbb, upp með rauða kjóla og bleik ský... Óska félaga mínum innilega með útkomuna.. knúsogkossar!

Vinkona mín úr fagri barnæsku, hélt uppá eins árs afmæli gullfallegrar dóttur sinnar í gær og óska ég þeim innnnnnnilega til hamingju. -Dóttur hennar með áfangann og vinkonu minni fyrir að hafa getað alið upp dóttur stórslysalaust í heilt ár!!!!!

Sjóræningja-og ammillispartý á kofanum...nk lau (ég á ekki ammilli en tek samt alveg við gjöfum...) Freysi dyravörður og æðstipungur á afmæli og verður hann hálfþrítugur! fjúbbífjú, ég er umkringd gamalmennum8|

Jólakorta- og konfekt gerð framundan, jebb ég ætla að breyta íbúðinni minni í jólaverksmiðju næstu 2 daga vegna þess að þá er ég í fríi og hef ekkert annað betra að gera... ogsvo verður skreytt næstu helgi OG kveikt á jólatré OG náð í jólasveininn Jesú upp í Grafarvog. Jebb, loxxxxxxins er jólaandinn kominn eftir nokkurra ára fjarveru og öflugri sem aldrei fyrr!

knús og kossar

ps Mæli með myndasíðunni á heimasíðunni kobba-lingur.bloggar.is -gullfalleg yngri systir mín pósar í vinnufötum úr norsku hágæða kaupfélagi!


» 6 hafa sagt sína skoðun

16.11.2006 19:00:47 / tinna

Í sól og sumaryyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyl

Var að hlusta á lagið ,,It´s not easy being green" með Kermit úr Prúðuleikurunum... datt framsóknarflokkurinn í hug... veit ekki af hverju...

Helgin var annasöm, prófkjör, foreldraheimsókn og vinna á Kofanum sínum.

Prófkjörið massaspennandi...

Foreldraheimsókn drulluskemmtileg (fékk voða gott að borða)

Vinnan á Kofanum sínum... yndi! Það kom til mín gaur á föstudagskvöldið og sagði að ég væri versti dj í heimi, ekki nóg með það heldur kvartaði hann við dyravörðinn líka (manninum var hent út sjáiði til) um það hversu hryllilegur dj ég væri. Ég ákvað að taka þessu sem hrósi, einfaldlega vegna þess að EF ég hefði verið jafn hræðileg og hann fullyrti -þá hefði hann sennilega ekki eytt klst inná Kofanum kvartandi og vælandi undan mér, það eru jú fleiri skemmtistaðir á stór-Reykjavíkursvæðinu. Þannig að ég komst að þeirri niðurstöðu að hann hefur verið svona skotinn í mér og ekki getað fengið útrás fyrir tilfinningar sínar öðruvísi en svona. OG HANA NÚ!:haha: Þannig að; strákar mínir; ef þið eruð svona skotnir í mér þá megið þið gjarna fara aðrar leiðir.

Eitt að lokum; be cool, stay in scool 8)

knús


» 3 hafa sagt sína skoðun

09.11.2006 20:00:10 / tinna

Heyr nú og kjósið!

ollræti mine lille skatter rundt om landet og þá sérstaklega þeir sem eru með lögheimili í Reykjavík!

Nk laugardag er prófkjör hjá Samfylkingunni í Reykjavík og allir sem geta vettlingi valdið (segir maður það ekki annars?) eiga og skulu -vinsamlegast 8| kjósa... Vegna þess að jú með því að kjósa erum við að fullnýta rétt okkar sem borgarar í lýðræðissamfélagi. Ég meina það eru ekki allir jafn heppir og við, t.a.m. þeir sem búa í einræðisríkjum og mega ekki hafa skoðun. EN allavega þá langar mig til þess að hvetja ykkur til þess að kjósa og þá sérstaklega þau Bryndísi Ísfold og Ágúst Ólaf, þetta er eðalfólk sem á svo sannarlega heima á alþingi og gott betur. Þið getið litið svona á þetta; Samfylkingin er hvort eð er að fara í ríkisstjórn og þetta er ykkar að velja þá sem eru að fara að stjórna landinu :haha:

Að lokum langar mig líka til þess að hvetja ykkur til þess að kíkja á Kofann til mín um helgina þar sem ég verð dídjei og ég lofa hressandi stemmingu, allavega að einhverju leiti... smá ... oggupons...

Allavega þá er ég í stuði (með guði) og vona að þið séuð það líka

Sjáumst um helgina


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8